Skólastjóri Gunnar Waage |
|
David Stanoch dálkahöfundur við Modern Drummer Magazine segir í gagnrýni sinni Gunnar Waage vera með "Fullkomna tækni". Hér má sjá úrdrátt úr umfjöllun Stanoch um plötuna "Take it outside". "Beyond his impeccable chops and "take no prisoners" relentlessness, a deeper meaning of the CD's title begins to reveal itself through the orchestration that frames the solo. A refreshing use of avant-garde textures both harmonic and rhythmic give lift to the solo, lending weight to its title but air to its feel, as the exploration of the improvisation seems to rise up and out of orbit inviting the listener to join the journey." "Gunnar keeps things interesting by turning corners with his unpredictable chops and avant-tinged orchestrations." "One thing's certain - you'll reach the outer limits and back a lot cheaper than you would on Richard Branson's Mothership, and your imagination will thank you." ------------------------------------------------------------------- Þeir tónlistarmenn sem starfað hafa með Gunnari á undanförnum árum eru; Derek Sherinian, David Garfield, Percy Jones, Tony Franklin, svo einhverjir séu nefndir. Á Íslandi hefur Gunnar Waage kennt við Tónmenntaskólann í Reykjavík og Tónlistarskólann í Bessastaðahreppi. Gunnar Waage er fæddur í Reykjavík árið 1965. Hann hóf 9 ára gamall nám við Barnamúsikskólann (nú Tónmenntaskólinn í Reykjavík) í undirbúningsdeild. Ári seinna tóku við 2 ár í píanónámi við skólann. Gunnar hóf 12 ára gamall nám við Tónlistaskólann í Reykjavík og nam þar klassískt slagverk í 2 ár. Þá færði hann sig ásamt kennara sínum Reyni Sigurðssyni yfir í Tónlistarskóla FÍH fyrsta árið sem sá skóli starfaði. Á þessum árum fékk Gunnar tækifæri til að spila með skólasynfóníu/strengjasveitum, Bigböndum, jazzböndum og nútímatónlist. Námskeið hjá Pétri Östlund, Paul Weeden, Paul Zukofsky seminar og námskeið hjá Claire Heldrich. Gunnar Lýkur Diplomaprófi frá Mcnally Smith College of Music haustið 1994. Þá hélt hann til Mexíkóborgar þar sem hann starfaði næstu 4 árin við trommuleik og kennslu. Tónlistaskóli G. Martell hafði starfað frá árinu 1898 þegar að Gunnar var fenginn til þess að standa að stofnun háskóladeildar þessarar virtu stofnunnar með samþykki forsætis og menntamálaráðuneytis í Mexíkó. Gunnar sá alfarið um slagverkskennslu við háskóladeildina og starfa 2 nemendur hans við Tónlistarháskóla G. Martell í Mexíkóborg í dag. Skólinn varð strax þjálfunarmiðstöð fyrir fólk sem stefnir á feril í sjónvarpi og tónlist í Suður Ameríku. Við því var að búast þar sem að 2000 nemendur voru við skólann í undirbúningsdeildum og því nægur efniviður fyrir stofnun háskóla. Við skólann kenndu margir af bestu og virtustu tónlistarmönnum Suður Ameríku.
Meira um G. Martell Tónlistarháskólann meira Í Mexíkó hefur Gunnar spilað/hljóðritað með Rodrigo Cardenas (Ricky Martin), Anthony Long (Johnny Logan), Rodrigo Mendoza og fleirum. |
|
|
|