Trommuskóli Gunnars Waage hefur á átt í mjög góðu samstarfi við Fjölmennt og hafa nemendur á vegum Fjölmenntar sótt spilatíma í trommuleik við skólann sem og komið fram á nemendahljómleikum..

Námið miðast að því að hlúa að áhugasviði hvers og eins í tónlist.

Námið er blanda af Músik-Þerapíu og hefðbundnu tónlistarnámi og er aðaláherslan lögð á að líðan nemenda sé með sem bestum hætti við leik og störf. 

Nánar um Fjölmennt fullorðinsfræðsla og skráningu á heimasíðu Fjölmenntar

Fjölmennt

 

 

 

 

 

Trommuskólinn hefur á undanförnum árum verið leiðandi á sviði trommusettskennslu.

Farið var af stað með kennslu á háskólastigi í byrjun janúar 2005. Trommuskóli Gunnars Waage hefur unnið mikið frumkvöðlastarf á Íslandi frá því hann var settur á fót haustið 2004. Í dag starfar skólinn á grunnstigi, miðstigi, framhalds og háskólastigi.

Einnig er starfandi sérdeild við skólann sem er samstarfsverkefni Trommuskólans og Fjölmennt fullorðinsfræðsla.

Ath.að námsskrá skólans er í sífelldri endurskoðun og eru breytingar gerðar reglulega.

 


 

 

 

 

 

 

 

 

.

 

.