Hér er fjallað um Undirbúningsdeild og Trommusettsdeild á háskólastigi. Skólinn starfar samkvæmt heilsvetrarkerfi
Undirbúningsdeild (Grunndeild) er sótt
af nemendum á öllum aldri, byrjendum jafnt sem lengra komnum.
Nám í undirbúningsdeild er almennt metið til eininga í fjölbrautar/menntaskólum.
Trommusettsdeild á háskólastigi
Trommusett og Hljóðhönnun / Fornám
Trommusett og Hljóðhönnun / Artist Diploma
T r o m m u s e t t - o g - H l j ó ð h ö n n u n / F o r n á m
1. vetrar
starfsþjálfun / Professional Certificate
Námið er tekið á einum vetri og nýtist vel sem sjálfstæður áfangi en einnig sem góður undirbúningur fyrir frekara nám við sértæka tónlistarskóla og/eða tónlistarháskóla. Námið tekur mið af stefnu stjórnvalda í menntamálum um aukið aðgengi að menntun og aukna fjölbreytni í námsframboði.
Þetta nám hentar vel fyrir þá
sem vilja ná miklum árangri og tökum
við inn fólk með ólíkan bakgrunn
og á öllum aldri. Inntökuskilyrði
taka mið af reynslu viðkomandi og getu.
Nemendur stunda nám í hljómfræði,
tónlistarsögu, tónsmíðum og
raftónlist.
Nemendur eru þjálfaðir í notkun
Pro Tools HD, nótnaskriftarforrita, upptökum
á trommum og heildarframleiðslu tónlistar
þar sem trommusettið spilar stórt hlutverk.